Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Breiðablik sunddeild - Óskir um æfingapláss í sundlaugum Kópavogs 2023-2024

Málsnúmer: 23061293

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 134. fundur

Lögð fram umsókn Sunddeildar Breiðabliks, dagsett 11. júní 2023, þar sem óskað er eftir tímum fyrir deildina í Kópavogslaug og Salalaug fyrir veturinn 2023/2024. Óskað er eftir sömu tímum og deildin hafði til umráða á síðasta vetri í laugunum.

Íþróttaráð samþykkir að úthluta Sunddeild Breiðabliks sömu tímum í sundlaugum Kópavogs og deildin hafði til umráða á síðasta vetri.