Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Reglur um heimgreiðslur

Málsnúmer: 23071020

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1288. fundur

Frá menntasviði, lagðar fram reglur um heimgreiðslur.

Bæjarstjórn samþykkir með 6 atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Helgu Jónsdóttur, Kolbeins Reginssonar og Bergljótar Kristinsdóttur framlagðar reglur um heimgreiðslur.

Bókun:

Undirrituð telja að greiðslur ættu að geta hafist við 12 mánaða aldur í stað 15 mánaða. Rökin fyrir því eru þau að fæðingarorlof er í dag 12 mánuðir og því myndast óheppilegt þriggja mánaða gat ef heimgreiðslur fást ekki fyrr en við 15 mánaða aldur. Fjölmörg önnur sveitarfélög, til dæmis Hafnarfjörður, Garðabær og Akureyri miða við 12 mánaða aldur. Þar að auki væri eðlilegt að fjárhæðin fylgdi þróun framlags til dagforeldra, enda var það haft til viðmiðunar við ákvörðun upphæðar heimgreiðslna.

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Helga Jónsdóttir

Kolbeinn Reginsson


Bókun:

Meirihlutinn telur mikilvægt að grafa ekki undan starfsemi dagforeldra og snúa við flótta þeirra úr greininni. Þá bendir meirihlutinn á að heimgreiðslur hjá Kópavogsbæ eru hærri en í þeim sveitarfélögum sem vísað er til í bókun bæjarfulltrúa Viðreisnar, Pírata og Vina Kópavogs.

Ásdís Kristinsdóttir

Orri V. Hlöðversson

Elísabet B. Sveinsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Andri Steinn Hilmarsson

Sigrún Hulda Jónsdóttir

Fundarhlé hófst kl. 20:58, fundi fram haldið kl. 21:04

Bókun:

Því fer fjarri að hugsunin sé að grafa undan starfsemi dagforeldra þótt heimgreiðslur stæðu foreldrum til boða frá 12 mánaða aldri barns og upphæð greiðslna væri sambærileg.

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Helga Jónsdóttir

Kolbeinn Reginsson

02

Bæjarráð - 3152. fundur

Frá menntasviði, lagðar fram reglur um heimgreiðslur.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

03

Bæjarstjórn - 1283. fundur

Frá menntasviði, dags. 21.08.2023, lagðar fram reglur um heimgreiðslur vegna barna sem

hvorki eru í dvöl hjá dagforeldri né í leikskóla.

Fundarhlé hófst kl. 18:12, fundi fram haldið kl. 19:19

Frá minnihluta:

Breytingartillaga: Undirrituð leggja til að fyrsta grein reglnanna breytist þannig að greiðslur geti hafist við 12 mánaða aldur í stað 15 mánaða.

Rökin fyrir því eru þau að fæðingarorlof er í dag 12 mánuðir og því myndast óheppilegt þriggja mánaða gat ef heimgreiðslur fást ekki fyrr en við 15 mánaða aldur. Fjölmörg önnur sveitarfélög, til dæmis Hafnarfjörður, Garðabær og Akureyri miða við 12 mánaða aldur.

Bæjarstjórn hafnar breytingartillögunni með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur, Helgu Jónsdóttur og Kolbeins Reginssonar.


Bæjarstjórn staðfestir framlagðar reglur um heimgreiðslur vegna barna sem hvorki eru í dvöl hjá dagforeldri né í leikskóla með 8 atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.

04

Bæjarráð - 3139. fundur

Frá menntasviði, dags. 21.08.2023, lagðar fram reglur um heimgreiðslur vegna barna sem

hvorki eru í dvöl hjá dagforeldri né í leikskóla.

Theódóra S. Þorsteinsdóttir kom til fundarins kl. 8:26

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.