Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Arnarland. Tillaga að breytingu á aðalskipulagi. Forkynning.

Málsnúmer: 2309029

Ferill máls

01

Skipulagsráð - 149. fundur

Lagt fram erindi Arinbjarnar Vilhjálmssonar, skipulagsstjóra Garðabæjar, dags. 31. ágúst 2023 þar sem óskað er eftir umsögn Kópavogsbæjar um tillögu á vinnslustigi að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030.

Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:10.000 dags. 17. júlí 2023 og greinargerð dags. í ágúst 2023 ásamt umhverfisskýrslu dags. 15. ágúst 2023. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 14. september 2023.

Lagt fram og kynnt. Skipulagsráð leggur áherslu á mikilvægi samstarfs Garðabæjar og Kópavogs um skipulagstillögur að sveitarfélagamörkum.

Vísað er til fyrri bókana 3. júlí 2023 og 14. mars 2022.

Mikilvægt er að svæðið allt verði heildstæð byggð og þjóni hagsmunum beggja sveitarfélaga. Áður en lengra er haldið þurfa að fara fram viðræður um sveitarfélagamörk milli Kópavogs og Garðabæjar.