Til baka í fundargerðir
Íþróttafélagið Þorlákur - Ósk um aðstöðu til æfinga og keppni í Kópavogi
Málsnúmer: 23091693
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 135. fundur
Lagt fram erindi frá Íþróttafélaginu Þorláki, dags. 8. september 2023, þar sem óskað er eftir aðstöðu til æfinga og keppni fyrir félagið.
Íþróttaráð getur því miður ekki orðið við erindinu og vísar í 2. grein um reglur íþróttaráðs Kópavogs vegna aðstöðu til æfinga og keppni í íþróttamannvirkjum Kópavogsbæjar, en þar segir:
"Nýstofnað íþróttafélag eða deild getur fyrst átt kost á úthlutun á tímum eftir þriggja ára starf innan samráðsvettvangs íþróttafélaga í Kópavogi og eftir að hafa tekið þátt með virkum hætti í starfi viðkomandi sérsambands innan ÍSÍ í þrjú ár".