Sundabraut. Aðalskipulagsbreyting og umhverfismat. Kynning tillögu á vinnslustigi. Umsagnarbeiðni.
Málsnúmer: 23092310
Ferill máls
01
Skipulags- og umhverfisráð - 19. fundur
Lögð fram umsagnarbeiðni Reykjavíkurborgar dags. 14. október 2025 þar sem óskað er eftir umsögn Kópavogsbæjar um tillögu á vinnslustigi vegna breytingar á aðalskipulagi Reykjavíkur fyrir Sundabraut. Andrea Kristinsdóttir verkefnastjóri aðalskipulags gerir grein fyrir erindinu.
Lagt fram. Ekki eru gerðar athugasemdir við tillöguna á þessu stigi.
02
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 33. fundur
Lögð fram umsagnarbeiðni Reykjavíkurborgar dags. 14. október 2025 þar sem óskað er eftir umsögn Kópavogsbæjar um tillögu á vinnslustigi vegna breytingar á aðalskipulagi Reykjavíkur fyrir Sundabraut.
Ekki eru gerðar athugasemdir við tillöguna.
03
Skipulagsráð - 151. fundur
Lagt fram að nýju erindi Reykjavíkurborgar dags. 20. september 2023 þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsráðs Kópavogsbæjar vegna fyrirhugaðra breytinga á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040. Með verklýsingunni eru boðaðar breytingar sem varða legu og útfærslu áformaðrar Sundabrautar. Á fundi skipulagsráðs Kópavogs þann 2. október 2023 var erindinu vísað til umsagnar skipulagsdeildar.
Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 10. október 2023.
Lagt fram og kynnt. Skipulagsráð samþykkir umsögn skipulagsdeildar dags. 10. október 2023.
04
Skipulagsráð - 150. fundur
Lagt fram erindi Reykjavíkurborgar dags. 20. september 2023 þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsráðs Kópavogsbæjar vegna fyrirhugaðra breytinga á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040. Með verklýsingunni eru boðaðar breytingar sem varða legu og útfærslu áformaðrar Sundabrautar.
Lagt fram. Vísað til umsagnar skipulagsdeildar.