Aðalskipulag Reykjavíkur 2040. Skotæfingasvæði á Álfsnesi. Drög að tillögu.
Málsnúmer: 23101231
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3150. fundur
Lagt fram erindi Haralds Sigurðssonar, deildarstjóra aðal- og svæðisskipulags f.h. Reykjavíkurborgar, dags. 12. október 2023, þar sem óskað er umsagnar Kópavogsbæjar um drög að tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040, dags. í október 2023.
Í breytingunni felst breytt landnotkun á norðanverðu Álfsnesi. Iðnaðarsvæði og opið svæði skerðast og komið verður fyrir nýju íþróttasvæði þar sem heimilt verður að stunda skotæfingar, skotíþróttir og skylda íþróttastarfsemi. Stefna um landnotkun verður tekin til endurskoðunar innan fjögurra ára.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
02
Skipulagsráð - 152. fundur
Lagt fram erindi Haralds Sigurðssonar, deildarstjóra aðal- og svæðisskipulags f.h. Reykjavíkurborgar, dags. 12. október 2023, þar sem óskað er umsagnar Kópavogsbæjar um drög að tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040, dags. í október 2023.
Í breytingunni felst breytt landnotkun á norðanverðu Álfsnesi. Iðnaðarsvæði og opið svæði skerðast og komið verður fyrir nýju íþróttasvæði þar sem heimilt verður að stunda skotæfingar, skotíþróttir og skylda íþróttastarfsemi. Stefna um landnotkun verður tekin til endurskoðunar innan fjögurra ára.
Lagt fram.
Skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við framlögð drög að tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040.