Þriggja ára fjárhagsáætlun 2025-2027
Málsnúmer: 23101967
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1288. fundur
Frá bæjarstjóra, lögð fram drög að þriggja ára fjárhagsáætlun 2025-2027 til seinni umræðu.
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri, lagði fram og gerði grein fyrir þriggja ára fjárhagsáætlun og lagði til að hún yrði samþykkt.
Forseti bar undir fundinn tillögu að fjárhagsáætlun fyrir árin 2025-2027.
Bæjarstjórn samþykkir fjárhagsáætlun fyrir árin 2025-2027 með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Helgu Jónsdóttur, Kolbeins Reginssonar og hjásetu Bergljótar Kristinsdóttur.
02
Bæjarstjórn - 1287. fundur
Frá bæjarstjóra, lögð fram drög að þriggja ára fjárhagsáætlun 2025-2027 til fyrri umræðu.
Bæjarstjórn samþykkir að vísa fjárhagsáætlun 2025-2027 til síðari umræðu með 11 atkvæðum.
03
Bæjarráð - 3148. fundur
Frá bæjarstjóra, lögð fram drög að þriggja ára fjárhagsáætlun 2025-2027.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa þriggja ára áætlun 2025-2027 til afgreiðslu bæjarstjórnar.