Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fyrirspurn um samræmda móttöku flóttafólks frá áheyrnarfulltrúa Samfylkingar í velferðarráði

Málsnúmer: 2310567

Ferill máls

01

Velferðarráð - 125. fundur

Minnisblað skrifstofustjóra dags. 17.10.2023 lagt fram.

Lagt fram.

02

Velferðarráð - 124. fundur

Erlendur Geirdal, áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar leggur fram fyrirspurn varðandi samræmda móttöku flóttamanna:

1. Hve mörgum flóttamönnum hefur Kópavogsbær tekið á móti á grundvelli samningsins sem undirritaður var þann 22. júní s.l.?

2. Hve mörg börn eru þar á meðal og hefur þeim sem eru á skólaaldri verið veitt skólavist?

3. Hve margir flóttamannanna eru í vinnu?

Velferðarráð samþykkir að vísa fyrirspurn til sviðsstjóra velferðarsviðs til úrvinnslu.