Fyrirspurn bæjarfulltrúa Bergljótar Kristinsdóttur um starfsemi Molans
Málsnúmer: 2310899
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3149. fundur
Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 30.10.2023, lagt fram svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa Bergljótar Kristinsdóttur um starfsemi Molans.
Lagt fram.
02
Bæjarráð - 3147. fundur
Frá bæjarfulltrúa Bergljótu Kristinsdóttur, dags. 11.10.2023, lögð fram svohljóðandi fyrirspurn;
Óskað er eftir upplýsingum um þá starfsemi sem í dag er rekin í Molanum.
Hversu margir starfsmenn vinna þar, hversu mörg eru stöðugildin og hvert er starfssvið hvers og eins. Hvernig er háttað samstarfi við þau samtök sem stefnt var að samvinnu við; Pietasamtökin, Bergið-headspace, Samtökin 78 og Samfés. Hefur orðið breyting á rekstrarkostnaði Molans með þeim breytingum sem hafa átt sér stað?
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa fyrirspurninni til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs.