Dimmuhvarf 29. Fyrirspurn.
Málsnúmer: 2311023
Ferill máls
01
Skipulagsráð - 155. fundur
Lögð fram fyrirspurn Guðmundar Óskars Unnarssonar byggingarverkfræðings dags. 25. október 2023 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 29 við Dimmuhvarf um fjölgun íbúða á lóðinni. Lóðin er 1553 m² að stærð, á henni er 193,6 m² einbýlishús ásamt stakstæðri 59 m² bílageymslu og 87 m² hesthúsi. Bílageymsla og hesthús eru sambyggð. Óskað er eftir heimild til að breyta hesthúsinu í séríbúð. Byggingarmagn á lóðinni helst óbreytt. Fyrirspurnin var lögð fyrir skipulagsráð þann 6. nóvember 2023. Afgreiðslu var frestað og fyrirspurninni vísað til umsagnar skipulagsdeildar.
Lagt fram minnisblað skipulagsdeildar dags. 30. nóvember 2023.
Skipulagsráð lítur neikvætt á framlagða fyrirspurn með sex atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins D. Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar, Kolbeins Reginssonar og Hákonar Gunnarssonar gegn atkvæði Theódóru S. Þorsteinsdóttur.
Bókun:
Undirritaðar telja að líta eigi jákvætt á erindið.
Theodóra S Þorsteinsdóttir og Sigurbjörg Erla Egilsdóttir.
02
Bæjarráð - 3150. fundur
Lögð fram fyrirspurn Guðmundar Óskars Unnarssonar byggingarverkfræðings dags. 25. október 2023 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 29 við Dimmuhvarf um fjölgun íbúða á lóðinni. Lóðin er 1553 m² að stærð, á henni er 193,6 m² einbýlishús ásamt stakstæðri 59 m² bílageymslu og 87 m² hesthúsi. Bílageymsla og hesthús eru sambyggð. Óskað er eftir heimild til að breyta hesthúsinu í séríbúð. Byggingarmagn á lóðinni helst óbreytt.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
03
Skipulagsráð - 152. fundur
Lögð fram fyrirspurn Guðmundar Óskars Unnarssonar byggingarverkfræðings dags. 25. október 2023 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 29 við Dimmuhvarf um fjölgun íbúða á lóðinni. Lóðin er 1553 m² að stærð, á henni er 193,6 m² einbýlishús ásamt stakstæðri 59 m² bílageymslu og 87 m² hesthúsi. Bílageymsla og hesthús eru sambyggð. Óskað er eftir heimild til að breyta hesthúsinu í séríbúð. Byggingarmagn á lóðinni helst óbreytt.
Afgreiðslu frestað. Vísað til umsagnar skipulagsdeildar.