Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fyrirspurn bæjarfulltrúa Andra Steins Hilmarssonar um fjölda lokana á deildum leikskóla vegna manneklu

Málsnúmer: 23111154

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3155. fundur

Frá menntasviði, dags. 04.12.2023, lagt fram svar við fyrirspurn um fjölda lokana á deildum leikskóla vegna manneklu haustið 2023 og samanburð milli ára síðustu sex ár.

Lagt fram.

Fundarhlé hófst kl. 10:31, fundi fram haldið kl. 10:51

Bókun:

"Það er alveg ljóst að ein birtingarmynd breytinga á leikskólaumhverfi Kópavogs sé sú að ekki hafi þurft að grípa til lokana á leikskólum bæjarins vegna veikinda eða manneklu það sem af er leikskólaári 2023-2024. Eins og er rakið í svari menntasviðs þurfti að loka 16 leikskólum af 21 einn dag eða fleiri síðasta vetur og alls voru lokunardagar 212 dagar veturinn 2022-2023. Rétt er að taka fram að skólaárið er núna hálfnað svo samanburðurinn er ekki að fullu sambærilegur en mönnun var víða erfið hjá leikskólunum okkar haustið 2022 og meira um lokanir þá en á vorönn og varað var mjög við því að staðan yrði verri haustið 2023 ef ekkert yrði að gert. Þetta er mjög ánægjulegt að sjá."

Andri Steinn Hilmarsson

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri Hlöðversson

Elísabet Berglind Sveinsdóttir

Bókun:

"Af þeirri greiningu sem hér liggur fyrir má sjá að lokanir á leikskólum er nýr vandi sem tengja má við styttingu vinnuvikunnar. Ljóst er að sveitarfélagið hefði þurft að setja meira fjármagn í rekstur leikskólanna og manna fleiri stöðugildi. Þess í stað var byrðinni varpað á ungar barnafjölskyldur, með bæði gríðarlegum gjaldskrárhækkunum og þjónustuskerðingu sem er líkleg til að koma verr niður á konum."

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

02

Bæjarráð - 3152. fundur

Frá bæjarfulltrúa Andra S. Hilmarssyni, dags. 17.11.2023, lögð fram fyrirspurn um fjölda lokana á deildum leikskóla vegna manneklu haustið 2023 og samanburð milli ára.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa fyrirspurninni til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs.

Viðaukatillaga:

"Undirrituð óskar eftir sömu upplýsingum er varðar fjölda lokana á deildum leikskóla vegna manneklu síðustu sex árin."