Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Tillaga að skipun vinnuhóps vegna verkefnisins "opnun félagsmiðstöðva um helgar"

Málsnúmer: 2311271

Ferill máls

01

Öldungaráð - 23. fundur

Lögð fram til umræðu fyrirspurn um stöðu mála er varðar beiðni um opnun félagsmiðstöðva eldra fólks um helgar.

Félag eldri borgara hefur á síðastliðnum árum óskað eftir stuðningi bæjarins við helgaropnanir í félagsmiðstöðvum eldri borgara.

Í fjárhagsáætlun ársins 2024 liggur fyrir tillaga um helgaropnun í félagsmiðstöðvum eldra fólks, tímabundið reynsluverkefni til 6 mánaða með opnun einn helgardagpart í mánuði á hverjum stað.

Öldungaráð skipar hér með vinnuhóp til að vinna að undirbúningi helgaropnana í félagsmiðstöðvunum og verður hópurinn skipaður eftilfarandi einstaklingum.

Sigrún Hulda Jónsdóttir

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Jón Atli Kristjánsson

Baldur Þór Baldvinsson

Stefán Arnarson

Formaður vinnuhópsins er Sigrún Hulda Jónsdóttir og boðar hún til fyrsta fundar.