Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Bókun stjórnar SSH. Fjárhagsáætlun Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins

Málsnúmer: 2311499

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1287. fundur

Frá SSH, lögð fram bókun stjórnar SSH um fjárhagsáætlun og fjárfestingaáætlun Skíðasvæða höfðuborgarsvæðisins. Óskað er eftir umræðu og afgreiðslu á annars vegar fjárhagsáætlun Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins og hins vegar bókun stjórnar SSH um tillögu samráðsnefndarinnar á vettvangi sveitarfélagsins.

Bæjarstjórn samþykkir fjárhagsáætlun, ásamt gjaldskrá, með 9 atkvæðum gegn atkvæði Theódóru S. Þorsteinsdóttur og hjásetu Sigurbjargar E. Egilsdóttur.

Bæjarstjórn samþykkir framlagða bókun stjórnar SSH um tillögu samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins með 9 atkvæðum gegn atkvæði Theódóru S. Þorsteinsdóttur og hjásetu Sigurbjargar E. Egilsdóttur.

Bókun:

"Undirrituð mótmælir harðlega áformum samstarfsnefndar skíðasvæðanna og SSH um að rekstrarfé Skálafells verði beint til Bláfjallasvæðisins fyrir komandi vetur. Jafnframt er því mótmælt að öllum fyrirhuguðum framkvæmdum í Skálafelli verði frestað.

Samkvæmt samkomulagi sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu átti að ráðast í endurnýjun og uppsetningu stólalyftu í Skálafelli árið 2023 og setja upp búnað til snjóframleiðslu þar árið 2025.

Einnig telur undirrituð mikilvægt að jafnviðamiklar breytingar í uppbyggingarsamningnum komi til samþykktar hjá sveitarfélögunum."

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

02

Bæjarráð - 3150. fundur

Frá SSH, lögð fram bókun stjórnar SSH um fjárhagsáætlun og fjárfestingaáætlun Skíðasvæða höfðuborgarsvæðisins. Óskað er eftir umræðu og afgreiðslu á annars vegar fjárhagsáætlun Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins og hins vegar bókun stjórnar SSH um tillögu samráðsnefndarinnar á vettvangi sveitarfélagsins.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.