Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Húsnæðisáætlun

Málsnúmer: 24011155

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1312. fundur

Húsnæðisáætlun 2025 lögð fram til samykktar.

02

Bæjarstjórn - 1312. fundur

Húsnæðisáætlun 2025 lögð fram til samykktar.

Bæjarstjórn staðfestir með 6 atkvæðum og hjásetu Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Thelmu B. Árnadóttur og Kolbeins Reginssonar húsnæðisáætlun Kópavogsbæjar 2025.

03

Bæjarráð - 3200. fundur

Húsnæðisáætlun 2025 lögð fram til samykktar.

Bæjarráð vísar drögum að húsnæðisáætlun til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bókun:

"Sú húsnæðisáætlun sem hér er lögð fram endurspeglar ekki raunveruleikann. Töluvert vantar af gögnum sem sett eru fram sem núll í skýrslunni en eru síðan notuð í frekari útreikninga. Sá texti sem settur er fram í skýrslunni um markmið Kópavogsbæjar um að allir geti orðið sér úti um fullnægjandi húsnæði á viðráðanlegu verði stenst ekki skoðun. Ekki hefur verið vilji fyrir því hjá fulltrúum meirihluta að ganga til samstarfs við óhagnaðardrifin leigufélög og engar kröfur hafa verið settar á byggingaraðila um að ákveðið hlutfall íbúða þurfi að uppfylla skilyrði hlutdeildarlána, sem myndi tryggja lægra verð en almennt gengur og gerist.

Þessi skýrsla byggir á húsnæðisáætlun 2020 - 2027 sem aftur byggir á húsnæðisskýrslu sem unnin var árið 2015 í samstarfi allra flokka. Tímabært er að taka upp þessa vinnu að nýju og setja fram markmið sem vilji er til að vinna að."

Bergljót Kristinsdóttir

Jóhanna Pálsdóttir

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Kolbeinn Reginsson


Bókun:

"Húsnæðisáætlunin sem hér er lögð fram er unnin á grunni frá HMS. Meirihlutinn tekur undir að þar sé sannarlega svigrúm til framfara. Meirihluti bæjarstjórnar Kópavogs leggur ríka áherslu á fjölbreytta valkosti á húsnæðismarkaði, m.a. með því að tryggja viðunandi framboð lóða sem stuðlar að fjölgun íbúða og hagkvæmara húsnæðisverði."

Orri Hlöðversson

Andri Steinn Hilmarsson

Elísabet Sveinsdóttir

04

Skipulagsráð - 159. fundur

Að beiðni Hákonar Gunnarssonar eru lögð fram drög að húsnæðisáætlun Kópavogsbæjar 2024.

Jakob Sindri Þórsson, sérfræðingur á stjórnsýslusviði, gerir grein fyrir erindinu.

Lagt fram og kynnt.

05

Bæjarstjórn - 1293. fundur

Lögð fram drög að húsnæðisáætlun Kópavogsbæjar 2024.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum húsnæðisáætlun Kópavogsbæjar 2024.

06

Bæjarstjórn - 1293. fundur

Lögð fram drög að húsnæðisáætlun Kópavogsbæjar 2024.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagða húsnæðisáætlun Kópavogsbæjar 2024.

07

Bæjarstjórn - 1293. fundur

Lögð fram drög að húsnæðisáætlun Kópavogsbæjar 2024.

Fundarhlé hófst kl. 22:22, fundi fram haldið kl. 22:26

Bæjarstjórn samþykkir framlagða húsnæðisáætlun Kópavogsbæjar 2024 með einu atkvæði og hjásetu Elísabetar B. Sveinsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur, Ásdísar Krisinsdóttar, Hjördís Ýrar Johnson, Andra S. Hilmarssonar, Sigrúnar H. Jónsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Helgu Jónsdóttur og Kolbeins Reginssonar.


Bókun bæjarstjórnar:

"Mikilvægt er að húsnæðisáætlanir HMS endurspegli raunstöðu í hverju sveitarfélagi út frá þörf á húsnæðismarkaði. Skapalón HMS er enn í vinnslu og meðfylgjandi áætlun gefur því ekki rétta mynd af stöðunni í Kópavogi. Mikilvægt er að hraða þeirri vinnu þannig að skýrsla sem þessi geri gagn."

08

Bæjarráð - 3162. fundur

Lögð fram drög að húsnæðisáætlun Kópavogsbæjar 2024.

Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

09

Bæjarráð - 3160. fundur

Lögð fram drög að húsnæðisáætlun Kópavogsbæjar 2024.

Frestað til næsta fundar