Fundargerð 46. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 19.02.2024
Málsnúmer: 24021610
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1295. fundur
Fundargerð 46. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 19.02.2024.
Lagt fram.
02
Bæjarráð - 3165. fundur
Fundargerð 46. eigendafundar stjórnar Sorpu bs. frá 19.02.2024.
Lagt fram.
Fyrirspurn bæjarráðsfulltrúa til Sorpu bs.:
"Undirrituð óskar eftir því að neðangreindar spurningar verði sendar til Sorpu og svör send til bæjarráðs Kópavogs.
1. Hver er lögfræðikostnaður í bókhaldi Sorpu sl. 8 ár?
a. Allur lögfræðikostnaður, skipt niður á ár?
b. Allur lögfræðikostnaður, skipt niður á verkefni?
2. Hvert er verðið á endurvinnsluefnum sem Kópavogsbær þarf að greiða til Sorpu á árinu 2024?
a. Skipt niður á allar tegundir endurvinnsluefna sem hirt eru frá heimilum?
3. Hvert er magnið á úrgangi til urðunar sem var kynnt og samþykkt með nýjum viðauka við eigendasamkomulagið í lok árs 2023?
a. Hvert er magnið á úrgangi sem Sorpa sótti um til urðunar?
4. Hver er fræðslukostnaður í bókhaldi Sorpu sl. 8 ár?
a. Allur fræðslukostnaður, skipt niður á ár?"
Theódóra S. Þorsteinsdóttir