Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Losun taðs frá félagsmönnum Spretts hestamannafélags.

Málsnúmer: 24021889

Ferill máls

01

Skipulags- og umhverfisráð - 7. fundur

Lagt fram erindi Hestamannafélagsins Spretts dags. 27. apríl 2025 um losun hrossataðs. Lagðar eru fram tillögur að lausnum til skemmri tíma um losun hrossataðs í nálægð við félagssvæði Spretts þar sem tað yrði notað í uppgræðslu. Óskað er að leitað verði langtímalausnar.

Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar og Karen Jónasdóttir verkefnastjóri umhverfismála gerðu grein fyrir erindinu.

Kynnt. Umhverfissviði er falið að finna viðunandi skammtímalausn á losun taðs og leggja tillögu að langtímalausn fyrir ráðið.