Til baka í fundargerðir
Fyrirspurn bæjarfulltrúa Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur um starfshætti yfirkjörstjórnar Kópavogs
Málsnúmer: 24041168
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3172. fundur
Frá lögfræðideild, dags. 24.04.2024, lagt fram svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa Pírata þar sem óskað var eftir upplýsingum um starfshætti yfirkjörstjórnar Kópavogs.
Lagt fram.
02
Bæjarráð - 3170. fundur
Frá bæjarfulltrúa Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur lögð fram eftirfarandi fyrirspurn:
Undirrituð óskar eftir upplýsingum um starfshætti yfirkjörstjórnar Kópavogs. Hvernig er aðgengi varafulltrúa að gögnum og fundargerðum háttað og eru til staðar starfsreglur kjörstjórnar?
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til bæjarritara.