Hagasmári 1 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Málsnúmer: 24042129
Ferill máls
01
Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 415. fundur
Þrjúbíó ehf., sækir um leyfi fyrir að setja upp LED skitli í stað útiskiltis að Hagasmári 1.
Teikning: Sigurður Halldórsson.
Synjað, með vísan í umsagnar skipulagsfulltrúa 21. mars 2025
02
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 18. fundur
Lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. mars 2025 sbr. umsagnarbeðni byggingarfulltrúa dags. 3. september 2024, varðandi byggingarleyfi fyrir LED ljósaskiltum á Hagasmára 1 (Smáralind). Sótt er um að skipta tveimur skiltum út fyrir LED ljósaskilti. Skiltin eru u.þ.b. 3,6 m á breidd og um 6,2 m á hæð. 1,8 m eru á milli skiltanna. Flatarmál hvors skiltis er um 23 m², samtals um 45 m².
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 21. mars 2025. Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið, á eigin kostnað.