Fyrirspurn Árna Péturs Árnasonar varðandi tillögur að sparnaðar- og aðhaldsaðgerðum í menningarmálum
Málsnúmer: 24042146
Ferill máls
01
Lista- og menningarráð - 165. fundur
Svar við fyrirspurn Árna Péturs Árnasonar varðandi tillögur að sparnaðar- og aðhaldsaðgerðum í menningarmálum.
Lagt fram.
Bókun Árna Péturs Árnasonar, áheyrnarfulltrúa Pírata:
Undirritaður bendir á að ekki var spurt um neitt sem ekki mætti finna með grúski í opinberum gögnum, nema þá að umrædd samskipti hafi öll farið fram munnlega sem þá teldust ekki góðir stjórnsýsluhættir. Lista- og menningarráð fer samkvæmd erindisbréfi með eftirlitshlutverk í menningarmálum bæjarins og því er eðlilegt að ráðið fái að skilja þankagang embættismanna við ákvarðanatöku og rökstuðning þarvið.
02
Lista- og menningarráð - 163. fundur
Fyrirspurn Árna Péturs Árnasonar áheyrnarfulltrúa Pírata um sparnaðar- og aðhaldsaðgerðir í menningarmálum.
Lista- og menningarráð vísar erindinu til umsagnar bæjarritara.