Beiðni Árna Péturs Árnasonar um að fulltrúum frá Sögufélagi, Héraðsskjalasafni og Þjóðminjasafni verði boðið á fund lista- og menningarráðs
Málsnúmer: 24042279
Ferill máls
01
Lista- og menningarráð - 165. fundur
Svar við beiðni Árna Péturs Árnasonar um að fulltrúum frá Sögufélagi, Héraðsskjalasafni og Þjóðminjasafni verði boðið á fund lista- og menningarráðs.
Lagt fram.
Bókun frá Árna Pétri Árnasyni, áheyrnarfulltrúa Pírata:
Umbeðnum gestum var ekki boðið á fundinn og umbeðið minnisblað ekki lagt fram. Undirritaður þekkir minjalögin vel og vildi því fá sérfræðingana inn á fundinn, þvert á það sem fram kemur í svari bæjarritara um að síðar verði haft samráð. Svar bæjarritara og niðurstaðan ganga því bersýnilega í berhögg við beiðnina um minnisblað þar um og að haft verði samband við sérfræðingana umtöluðu.
02
Lista- og menningarráð - 163. fundur
Beiðni Árna Péturs Árnasonar áheyrnarfulltrúa Pírata um minnisblað um hvernig eigi að standa að flutningi minja úr minjasafni og Hérðasskjalasafni og flokkun þeirra. Einnig beiðni um að fá gesti inn á fund ráðsins undir málinu til að ræða varðveislu og flutning minjanna.
Lista- og menningarráð samþykkir beiðni um að fá umbeðið minnisblað og kynningu í ráðinu þegar frekar upplýsingar liggja fyrir en málið er í vinnslu hjá stjórnsýslu sveitarfélagsins. Málinu er vísað til bæjarritara.