Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fyrirspurn Indriða I. Stefánssonar um ákvarðanatöku í velferðarþjónustu

Málsnúmer: 24042632

Ferill máls

01

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 108. fundur

Kynning frá fulltrúa Velferðarsviðs Kópavogsbæjar á verklagi og framkvæmd einstakra mála.

Kynnt

02

Jafnréttis- og mannréttindaráð - 106. fundur

Fá til umfjöllunar er hvernig bærinn tryggir aðkomu skjólstæðinga velferðarþjónustu að ákvörðunum um eigin mál.

Eins og kom fram í Kveik í gær lýsti einn skjólstæðingurinn því að haldinn hafi verið fundur um hennar mál með lögrfræðingum og félagsráðgjöfum en henni ekki boðið á fundinn.

Ég myndi telja nauðsynlegt að sé þess nokkur kostur fái fólk tækifæri á því að hafa áhrif á ákvarðanatöku í málum sem þau varða.

Þannig myndi ég vilja fá kynningu á því hvaða viðmið bærinn hefur í þessum málenfum og hvernig þeim viðmiðum er fylgt eftir.

Jafnréttis- og mannréttindaráð óskar eftir kynningu frá fulltrúa Velferðarsviðs Kópavogsbæjar á verklagi og framkvæmd einstakra mála sem heyrir undir þjónustu Velferðarsviðs og hvernig tryggð er aðkoma þjónustuþega að afgreiðslu mála.