Breiðablik sunddeild - Óskir um æfingapláss í sundlaugum Kópavogs 2024-2025
Málsnúmer: 2405156
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 142. fundur
Lögð fram umsókn Sunddeildar Breiðabliks, dagsett 6. maí 2024, þar sem óskað er eftir tímum fyrir deildina í Kópavogslaug og Salalaug fyrir veturinn 2024/2025.
Salalaug: Íþróttaráð samþykkir óskir deildarinnar um tíma í útilaug. Ekki er hægt að verða við óskum deildarinnar um aukinn tíma í innilaug og er því samþykkt að hafa óbreytta töflu frá síðasta vetri fyrir innilaug.
Kópavogslaug: Íþróttaráð samþykkir óskir deildarinnar fyrir innilaug. Ekki er hægt að verða við óskum deildarinnar um aukinn tíma í útilaug og er því samþykkt að hafa óbreytta töflu frá síðasta vetri fyrir útilaug. Fyrir litlu innilaugina eru samþykktir sömu tímar og á síðasta vetri. Viðbótartímar sem óskað er eftir frá 14-16 á mánudögum og miðvikudögum miðast við að skólasundi sé lokið á þeim tíma.