Beiðni Árna Péturs Árnasonar um upplýsingar um lagalegar heimildir starfsmanna Hérðaðsskjalasafns til að sýsla með gögn úr safnkosti Þjóðaskjalasafns
Málsnúmer: 24052297
Ferill máls
01
Lista- og menningarráð - 164. fundur
Beiðni Árna Péturs Árnasonar áheyrnarfulltrúa Pírata um skriflegar upplýsingar um lagalegar heimildir starfsmanna Hérðaðsskjalasafns Kópavogs til að sýsla með gögn úr safnkosti Þjóðaskjalasafns.
Samþykkt að vísa málinu til umsagnar bæjarritara.
Bókun Árna Péturs Árnasonar:
"Með vísan til 13. gr. laga 77/2014 um Opinber skjalasöfn og fullyrðinga bæjarritara í greinargerð sem fylgdi lið 7 á bæjarráðsfundi 2.5.23, þess efnis að Héraðsskjalasafn Kópavogs hafi ekki verið lagt niður og að starfsemi sé í lágmarki, og með tilliti til þess að dyrum safnsins hefur verið lokað almenningi, óskar áheyrnarfulltrúi Pírata eftir skýringum á því hvernig allar skyldur opinberra skjalasafna samræmast fullyrðingum bæjarritara og ástandinu á Héraðsskjalasafni. Í því samhengi vekur undirritaður athygli á svörum bæjarlögmanns við fyrirspurn undirritaðs frá 22. mars. Undirritaður spyr og einnig hvernig tryggt sé að uppfylling lágmarksskyldna falli ekki niður.
Áheyrnarfulltrúi Pírata óskar einnig eftir skýringum á því hvers vegna og hvernig tveimur eftirlits- og stjórnsýsluaðilum, þ.e. Héraðsskjalasafni Kópavogs og Þjóðskjalasafni, er ætlað að sinna hver um sig einungis hluta af skyldum eins opinbers skjalasafns, og á hvaða lagagrunni sú ráðstöfun er byggð."