Sáttmáli um símafrí í skóla- og frístundastarfi í Kópavogi
Málsnúmer: 24053801
Ferill máls
01
Menntaráð - 156. fundur
Sáttmáli um símafrí í skóla- og frístundastarfi í Kópavogi lagður fram til samþykktar.
Menntaráð samþykkir sáttmála um símafrí fyrir sitt leyti með þeim fyrirvara að fjármögnun fyrir viðeigandi afþreyingu og aðstöðu verði tryggð og útfærslan verði unnin í samráði við nemendaráð í hverjum skóla fyrir sig.
Bergþóru, Óðni og Zuzönnu er þökkuð góð kynning.
Bergþóra, Óðinn og Zuzanna víkja af fundi kl. 17:10.
- Sáttmáli um símafrí í skóla- og frístundastarfi í grunnskólum Kópavogs
- Umsögn Ungmennaráðs vegna sameiginlegs sáttmála um símanotkun í grunnskólum Kópavogsbæjar
- Ungmennaráð - Fundargerð fundur nr.56
- Ágrip - Sáttmáli um símafrí í skóla- og frístundastarfi í grunnskólum Kópavogs
- Sáttmáli um símalausa skóla - Heildarniðurstaða allra kannana
02
Ungmennaráð - 56. fundur
Óskað eftir umsögn ungmennaráðs í tengslum við sáttmála um símalaust skóla- og frístundastarf í grunnskólum Kópavogs.
Ungmennaráð styður að gerður sé sameiginlegur sáttmáli um símalaust skólastarf. Fulltrúar ungmennaráðs telja mikilvægt að slíkur sáttmáli byggi á trausti, samráði við börn og ungmenni og raunhæfum lausnum sem styðja nám, líðan og félagslíf nemenda.
03
Menntaráð - 155. fundur
Kynning á vinnu við sáttmála um símalausa skóla lögð fram.
Bergþóru Þórhallsdóttur er þökkuð góð kynning á Sáttmála um símalausa skóla.
Bergþóra Þórhallsdóttir kemur inn á fund kl. 17:50
BÞ víkur af fundi kl. 18:30
04
Menntaráð - 130. fundur
Lagt fram minnisblað um tilraunaverkefni um símanotkun nemenda í grunnskólum Kópavogs.
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir, Tryggvi Felixsson, Donata Honkowicz Bukowska og Einar Örn Þorvarðarson lögðu fram eftirfarandi bókun:
Hér er lagt fram minnisblað þar sem fjallað er um „ákvörðun sem tekin var síðastliðið vor“ um að hefja tilraunaverkefni þar sem unnar yrðu reglur um símanotkun í grunnskólum Kópavogs. Þegar hefur verið haft samband við bæði skólastjórnendur og Rannsóknir og greiningu um árangursmælingar. Athygli vekur að tillaga um að fara af stað með verkefnið var aldrei lögð fyrir Menntaráð til afgreiðslu heldur var ákvörðunin tekin af formanni ráðsins án þess að aðrir fulltrúar væru svo mikið sem upplýstir um það fyrr en núna.
Fulltrúar minnihlutans taka undir mikilvægi þess að fara af stað með verkefnið en óska eftir því að lögð verði fram formleg tillaga til afgreiðslu næsta fundar ráðsins, þar sem markmið verkefnisins og vinnutilhögun verði lýst.
Hanna Carla Jóhannsdóttir, Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, Jónas Haukur Einarsson, Svava Halldóra Friðgeirsdóttir lögðu fram eftirfarandi bókun:
Það er ekkert óeðlilegt við það að menntasvið hefji tilraunaverkefni af þessum toga að hvatningu formanns menntaráðs. Menntasvið vinnur að fjölda verkefna sem ekki eru samþykkt sérstaklega í menntaráði.
Formaður menntaráðs hefur þegar lýst því yfir að frekari upplýsingar um útfærslu verði lögð fyrir menntaráð þegar þeirri vinnu lýkur í samvinnu við viðkomandi skólastjórnendur.