Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Breyting á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Rammahluti Vífilsstaðalands og deiliskipulag Hnoðraholts norður. Umsagnarbeiðni um tillögu á vinnslustigi.

Málsnúmer: 24071219

Ferill máls

01

Skipulagsráð - 167. fundur

Lögð fram umsagnarbeiðni frá Garðabæ dags. 7. júní 2024 um tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 fyrir rammahluta Vífilsstaðalands og deiliskipulagi fyrir Hnoðraholts norður. Í breytingu á Aðalskipulagi 2016-2030 felst að hámarksfjölda íbúða á svæðinu fjölgi úr 2.470 í 2.700. Í breytingu á deiliskipulagi felst að götunöfnum verði breytt, breyting á legu stígs meðfram sveitarfélagsmörkum, stytting á tveimur botnlangagötum, fyrirhuguð einbýlishús verði parhús í nokkrum tilfellum, fjölbýlishús verði hækkuð um eina hæð og tvær lóðir verði minnkaðar.

Skýringartöflur vegna breytinga á Rammahluti Vífilsstaðalands dags. 29. maí 2024 og uppdráttur í mkv. 1:2000 og 1:1000 dags. 8. júlí 2024.

Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri Garðabæjar gerir grein fyrir erindinu.

Lagt fram og kynnt. Skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við framlagða tillögu á vinnslustigi en óskar eftir að á síðari stigum fylgi tillögunni uppfærðar umferðargreiningar m.t.t. umferðarlausna- og tenginga við Arnarnesveg í Kópavogi um Leirdalsop.