Til baka í fundargerðir
Bókun 580. fundar stjórnar SSH. Fjölsmiðjan endurnýjun þjónustusamnings
Málsnúmer: 2407466
Ferill máls
01
Velferðarráð - 141. fundur
Lagður fram til kynningar þjónustusamningur SSH við Fjölsmiðjuna.
Lagt fram.
02
Bæjarráð - 3181. fundur
Frá SSH. dags. 04.07.2024, lagt fram erindi varðandi aukin rekstrarframlög til Fjölsmiðjunnar. Óskað er eftir efnislegri umræðu og afgreiðslu málsins.
Bæjarráð, í umboði bæjarstjórnar, samþykkir með fimm atkvæðum að endurnýja þjónustusamning sinn við Fjölsmiðjuna til allt að fimm ára á grunni núverandi samnings og viðauka við hann. Bæjarráð felur sviðsstjóra velferðarsviðs framkvæmd málsins enda rúmast útgjöldin innan fjárheimilda velferðarsviðs.