Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hellnahraun 3. áfangi, breyting á deiliskipulagi. Umsagnarbeiðni.

Málsnúmer: 24082525

Ferill máls

01

Skipulagsráð - 170. fundur

Lögð fram umsagnarbeiðni Hafnarfjarðarkaupstaðar dags. 18. júlí 2024 um breytingu á deiliskipulagi fyrir Borgahellu 25 og Tunguhellu 15-17.

Erindið var lagt fram á fundi skipulagsráðs þann 2. september 2024 ásamt uppdrætti í mvk. 1:2000 dags. 30. maí 2024. Erindinu var vísað til umsagnar skipulagsdeildar.

Þá lögð fram umsögn skipulagsdeildar dags. 12. september 2024.

Skipulagsráð gerir ekki athugasemdir við framlagða tillögu en þar sem að í samantekt á niðurstöðum umhverfismats eru áhrif á grunnvatn metin óviss er vert að benda á mikilvægi þess að þeim mótvægisaðgerðum sem lýst er í matsskýrslunni verði framfylgt og vöktun á áhrifum á grunnvatn tryggð.

02

Skipulagsráð - 169. fundur

Lögð fram umsagnarbeiðni Hafnarfjarðarkaupstaðar dags. 18. júlí 2024 um breytingu á deiliskipulagi fyrir Borgahellu 25 og Tunguhellu 15-17.

Uppdráttur í mvk. 1:2000 dags. 30. maí 2024.

Lagt fram. Vísað til umsagnar skipulagsdeildar.