Til baka í fundargerðir
Aðalskipulag Reykjavíkur 2040. Keldur og nágrenni. Tillaga á vinnslustigi. Umsagnarbeiðni.
Málsnúmer: 24092692
Ferill máls
01
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 26. fundur
Lögð fram umsagnarbeiðni frá Reykjavíkurborg dags. 3. júlí 2025 vegna tillögu á vinnslustigi að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2040 um breytingar á landnotkun og þróun byggðar í landi Keldna og nágrennis.
Ekki eru gerðar athugasemdir við tillöguna.
02
Skipulagsráð - 171. fundur
Lögð fram umsagnarbeiðni Reykjavíkurborgar dags. 19. september 2024 um verklýsingu skipulagsgerðar og umhverfismats fyrir rammahluta aðalskipulags Reykjavíkur 2040 fyrir Keldur og nágrenni.
Lagt fram og kynnt.
Kópavogsbær leggur áherslu á að uppbygging 6. lotu borgarlínu að Keldnaholti seinki ekki uppbyggingu 2. lotu innan Kópavogsbæjar.