Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Ósk bæjarfulltrúa Bergljótar Kristinsdóttur um upplýsingar um stöðu uppbyggingarverkefnis á reitum B1-1 og B4

Málsnúmer: 24093280

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3189. fundur

Frá bæjarfulltrúa Samfylkingar, lögð fram svohljóðandi fyrirspurn:Undirrituð óskar eftir upplýsingum um stöðu uppbyggingarverkefnis á reitum B1-1 og B4 á miðbæjarsvæði Kópavogs. Breytt aðalskipulag og nýtt deiliskipulag fyrir svæðið voru samþykkt í bæjarstjórn 25. maí 2021. Gert var samkomulag við Árkór ehf. um uppbyggingu á reitunum þar sem stefnt var að því að hefja framkvæmdir seinni hluta árs 2022 og klára að fullu í lok árs 2025. Óskað er eftir upplýsingum um stöðu samningsins við Árkór, möguleg viðbrögð við vanefndum og framtíðaráform.

Bæjarráð vísar fyrirspurninni til umsagnar bæjarstjóra.