Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Háholt Hnoðraholts. Breyting á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030. Umsagnarbeiðni.

Málsnúmer: 24102559

Ferill máls

01

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 34. fundur

Lögð fram umsagnarbeiðni Garðabæjar dags. 9. október 2025 um tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 fyrir Háholt Hnoðraholts. Uppdráttur dags. 26. mars 2025. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 13. október 2025 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra aðalskipulags og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 10. nóvember 2025.

Umsögn verkefnastjóra aðalskipulags dags. 10. nóvember 2025, samþykkt.

02

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 31. fundur

Lögð fram umsagnarbeiðni Garðabæjar dags. 9. október 2025 um tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 fyrir Háholt Hnoðraholts. Uppdráttur dags. 26. mars 2025.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra aðalskipulags.

03

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 21. fundur

Lögð fram að nýju umsagnarbeiðni Garðabæjar dags. 9. apríl 2025 um tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 fyrir Háholt Hnoðraholts. Tillagan er á vinnslustigi og í henni felst að tákn fyrir svæði fyrir samfélagsþjónustu (4.05 S leikskóli) á Háholti Hnoðraholts verði fellt út. Iðnaðarsvæði (4.22 I, hitaveitutankar) á Háholti Hnoðraholts verði fellt út. Gert verður ráð fyrir svæði fyrir samfélagsþjónustu (4.22 S) þar sem núgildandi skipulag gerir ráð fyrir hitaveitutönkum. Lögun og stærð landnotkunarreitanna 4.04 Íb og 4.18 Op breytist lítillega. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 14. apríl 2025 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra aðalskipulags.

Þá lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa aðalskipulags dags. 15. apríl 2025.

Umsögn skipulagsfulltrúa aðalskipulags dags. 15. apríl 2025, samþykkt.

04

Skipulagsráð - 173. fundur

Lögð fram umsagnarbeiðni frá Garðabæ dags. 24. október 2024 um skipulagslýsingu vegna breytingar á aðalskipulagi Garðabæjar og nýs deiliskipulags Hnoðraholts suður, háholts dags. 3. október 2024. Fyrirhuguð breyting á aðalskipulagi felst í að reitur fyrir iðnað er felldur niður og breytingar gerðar á reit fyrir stofnanir. Í deiliskipulagi er boðuð breyting á lóð fyrir leikskóla og lóð fyrir búsetukjarna.

Skipulagsráð bendir á að tryggja þurfi að niðurfelling iðnaðarreits fyrir hitaveitutanka hafi ekki neikvæð áhrif á flæði heitavatns til aðliggjandi búsetusvæða. Skipulagsráð áskilur sér rétt til frekari athugasemda á síðari stigum.