Til baka í fundargerðir
Borgarlína, lota 1. Ártúnshöfði - Hamraborg. Kynning á umhverfismatsskýrslu. Umsagnarbeiðni.
Málsnúmer: 24111705
Ferill máls
01
Skipulagsráð - 175. fundur
Lögð fram umsagnarbeiðni frá Skipulagsstofnun dags. 14. nóvember 2024 vegna kynningar á umhverfismatsskýrslu fyrir 1. lotu Borgarlínu frá Ártúnshöfða að Hamraborg.
Leggja skal áherslu á að forðast neikvæð áhrif á jarðmyndanir við Borgir í Kópavogi og menningarminjar við Borgarholtsbraut. Mikilvægt er að mótvægisaðgerðum verði framfylgt. Jafnframt er mikilvægt að á framkvæmdatíma verði lögð rík áhersla á að forðast áhrif á íbúðarbyggð á Kársnesi. Endanleg útfærsla Borgarlínu á Bakkabraut og Borgarholtsbraut verður ákvörðuð í deiliskipulagi.
Gunnar S. Ragnarsson sat hjá við afgreiðslu málsins.
Bókun:
„Styð bókunina en er á móti tillögunni í heild sinni“.
Kristinn D. Gissurarson.