Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fyrirspurn varðandi húsnæði fyrir dagþjónustu við einstaklinga með heilabilunarsjúkdóma frá áheyrnarfulltrúa Samfylkingar í velferðarráði

Málsnúmer: 24111893

Ferill máls

01

Velferðar- og mannréttindaráð - 1. fundur

Erlendur Geirdal áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar í Velferðarráði lagði fram fyrirspurn:

Mikil og vaxandi þörf er í samfélaginu fyrir þjónustu við fólk með heilabilun og nú eru 60 manns á biðlista eftir þjónustu hjá Seiglunni á St. Jósefsspítala, sem er fyrsta úrræði fyrir fólk sem er skammt á veg komið í sínum heilabilunarsjúkdómi.

Mun Kópavogsbær koma til móts við þessa þörf með því að leggja til húsnæði fyrir dagþjónustu við einstaklinga með heilabilunarsjúkdóm?

Minnisblað skrifstofustjóra dags. 24.1.2025 lagt fram.

Velferðar- og mannréttindaráð þakkar fyrir kynninguna.

02

Velferðarráð - 140. fundur

Erlendur Geirdal áheyrnarfulltrúi Samfylkingarinnar í Velferðarráði leggur fram fyrirspurn:

Mikil og vaxandi þörf er í samfélaginu fyrir þjónustu við fólk með heilabilun og nú eru 60 manns á biðlista eftir þjónustu hjá Seiglunni á St. Jósefsspítala, sem er fyrsta úrræði fyrir fólk sem er skammt á veg komið í sínum heilabilunarsjúkdómi.

Mun Kópavogsbær koma til móts við þessa þörf með því að leggja til húsnæði fyrir dagþjónustu við einstaklinga með heilabilunarsjúkdóm?

Velferðarráð vísar fyrirspurn til sviðsstjóra velferðarsviðs til úrvinnslu.