Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fyrirspurn nefndarfulltrúa Indriða Stefánssonar um lögmæti 177. fundar umhverfis- og samgöngunefndar

Málsnúmer: 2411207

Ferill máls

01

Umhverfis- og samgöngunefnd - 178. fundur

Varabæjarfulltrúinn og nefndarmaður Indriði Ingi Stefánsson óskar eftir því að skorið sé úr um lögmæti 177. fundar umhverfis- og samgöngunefndar. Fundarboð var ekki aðgengilegt nefndarmanni vegna uppfærslu netfanga eftir athugun UT deildar Kópavogsbæjar.

177. fundur umhverfis- og samgöngunefndar telst ekki ólögmætur samkvæmt svarbréfi bæjarlögmanns. Að teknu tilliti við ábendingarinnar voru mál af dagskrá 177. fundar tekin fyrir að nýju á 178. fundi umhverfis- og samgöngunefndar.

Bókun:

Fulltrúi Pírata gerir athugasemdir við álit bæjarlögmanns sem eru eftirfarandi:

1. Ásetningur sveitarfélagsins er ekki sá sami annars vegar er ætlun sveitarfélags að boða fulltrúa á fundinn hins vegar að boða fulltrúann ekki

2. Á fundinum voru teknar ákvarðanir og mál afgreidd. Þannig að það stenst ekki að fundurinn hafi ekki ákveðið neitt.

3. Að lokum má fallast á þá túlkun að bænum sé ekki skylt að staðfesta móttöku en hins vegar ætti bænum að vera skylt að tryggja að móttaka sé möguleg.

Indriði Ingi Stefánsson