Til baka í fundargerðir
Fyrirspurn um fjölda Kópavogsbúa á biðlista eftir hjúkrunarrými og dagdvöl frá aðalmanni Viðreisnar í velferðarráði
Málsnúmer: 2411396
Ferill máls
01
Velferðarráð - 140. fundur
Á fundi velferðarráðs þann 28.10.2024 lagði Einar Örn Þorvarðarson aðalmaður Viðreisnar í velferðarráði fram eftirfarandi fyrirspurn:
1. Hver er fjöldi hjúkrunar- og dagdvalarrýma á höfuðborgarsvæðinu og hvaða uppbygging er framundan í Kópavogi?
2. Hve margir Kópavogsbúar eru á bið eftir hjúkrunarrýmum?
3. Hve margir Kópavogsbúar eru á bið eftir dagdvalarrýmum?
Minnisblað skrifstofustjóra dags. 11.11.2024 lagt fram.
Lagt fram.
Velferðarráð óskar eftir að fá tölulegar upplýsingar um hjúkrunar- og dagdvalarrými og biðlista með reglubundnum hætti eins og aðrar lykiltölur sviðsins.