Til baka í fundargerðir
Vatnsendablettur 4. Fyrirspurn.
Málsnúmer: 2412505
Ferill máls
01
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 15. fundur
Lögð fram fyrirspurn Sveins Ívarssonar arkitekts dags. 9. desember 2024 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 4 við Vatnsendablett um að koma fyrir stakstæðri 48,3 m² bílgeymslu á lóðinni. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,03 í 0,04 við breytinguna.
Uppdrættir í mkv. 1:100 dags. 1. nóvember 2024.
Þá lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 24. janúar 2025.
Með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 25. janúar 2025 eru ekki gerðar athugasemdir við að fyrirspyrjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við erindið á eigin kostnað. Tillagan verði grenndarkynnt berist hún.