Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Lántökur Kópavogsbæjar 2025 - Framhaldsmál

Málsnúmer: 25011055

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1315. fundur

Frá fjármálasviði, dags. 18. febrúar 2025, lagt fram erindi varðandi breytingar á lánalínum Kópavogsbæjar 2025.

02

Bæjarstjórn - 1315. fundur

Frá fjármálasviði, dags. 18. febrúar 2025, lagt fram erindi varðandi breytingar á lánalínum Kópavogsbæjar 2025.

Bæjarstjórn Kópavogsbæjar samþykkir með 6 atkvæðum og hjásetu Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Bergljótar Kristinsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Helgu Jónsdóttur og Kolbeins Reginssonar að heimila hækkun á lánalínum bæjarins hjá Arion banka um kr. 1.200 m.kr., eða í kr. 3.000 m.kr. með samskonar fyrirkomulagi og gildir um núverandi heimild. Jafnframt er bæjarstjóra, Ásdísi Kristjánsdóttur, kt. 280978-3459 eða Ingólfi Arnarsyni 050656-3149 veitt fullt og ótakmarkað umboð til fyrir hönd Kópavogsbæjar að undirrita lánasamning sem felur í sér framangreinda hækkun.

03

Bæjarráð - 3205. fundur

Frá fjármálasviði, dags. 18. febrúar 2025, lagt fram erindi varðandi breytingar á lánalínum Kópavogsbæjar 2025.

Bæjarráð vísar málinu með þremur atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur til afgreiðslu bæjarstjórnar.

04

Bæjarstjórn - 1313. fundur

Frá fjármálasviði, dags. 20. janúar 2025, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild til framlengingar lánssamning með viðauka.

Bæjarstjórn Kópavogsbæjar samþykkir með 9 atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur að Kópavogsbær geri samning við Íslandsbanka hf. um yfirdráttarheimild á veltureikningi („yfirdráttarlán“) með hámarksfjárhæð 1.600.000.000 kr.

Yfirdráttarheimildin skal í upphafi gilda til eins árs. Gerður verður viðauki við núgildandi samning um yfirdráttarheimild á veltureikningi þar sem gildistíminn er framlengdur.

Heimilt er að framlengja gildistímann tvisvar sinnum til viðbótar, með viðauka um framlengingu á gildistíma um eitt ár, þannig að gildistíminn verði til allt að þriggja ára.

Bæjarstjórn veitir Ásdísi Kristjánsdóttur, kt. 280978-3459, Kristínu Egilsdóttur, kt. 030268-5989 og/eða Ingólfi Arnarsyni, kt. 050656-3149, hverju um sig eða öllum saman, umboð til að semja um og undirrita, allt að þrisvar sinnum, viðauka þar sem gildistíminn er framlengdur um eitt ár í senn.„

05

Bæjarráð - 3201. fundur

Frá fjármálasviði, dags. 20. janúar 2025, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild til framlengingar lánssamning með viðauka.

Vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar.