Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Stúka við félagsvæði HK

Málsnúmer: 25022445

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3210. fundur

Frá bæjarstjóra, dags. 17.03.2025, lagt fram svarbréf til HK vegna stúku við félagssvæði.

Lagt fram.

02

Bæjarráð - 3207. fundur

Frá HK, dags. 25.02.2025. lagt fram erindi þar sem óskað er eftir samtali við Kópavogsbæ varðandi stúku við félagssvæði HK.

Umræður.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjóra.

Fundarhlé hófst kl. 9:52, fundi fram haldið kl. 10:28

Bókun:

"Frumhönnun hefur verið kynnt í bæjarráði sem taka mið af þarfagreiningu bæjarins og HK. Sviðsmynd sem horft er til var meðal annars unnið af vinnuteymi skipuð af tveimur fulltrúum HK. Næsta skref er að funda með HK um áframhald verkefnisins. Mikilvægt er að ramminn liggur nú fyrir og hægt að stíga næstu skref. Samráð verður áfram haft við hagaðila á öllum stigum."

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri V. Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson

Andri S. Hilmarsson


Bókun:

"Það er engan veginn tímabært að leggja af stað í jafn umfangsmikla framkvæmd og hér er lagt til nú í haust, sér í lagi þar sem ekki hefur verið samráð við HK eins og fram kemur í bréfi framkvæmdastjóra HK. Framkvæmd sem kostar milljarða króna þarf að undirbúa mun betur bæði hvað varðar þarfir Kópavogsbæjar og íþróttafélagsins. Forsendubreyting hefur orðið eftir þarfagreininguna 2023 með tilkomu Kóraskóla."

Bergljót Kristinsdóttir

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Helga Jónsdóttir


Bókun:

"Viljayfirlýsing vegna stúkumannvirkis við Kórinn var undirrituð 2013 og er því löngu tímabært að Kópavogsbær standi við þær væntingar sem þar koma fram. Það hefur verið skýrt af hálfu meirihlutans. HK átti tvo fulltrúa í vinnuteymi þar sem unnin var ítarleg þarfagreining vegna stúkumannvirkisins og haft verður áfram samráð við HK við hönnun stúkunnar. Með nýrri stúku og keppnisvelli lýkur uppbyggingu á heildstæðu íþróttasvæði við Kórinn til hagsbóta fyrir Kópavogsbúa."

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri V. Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson

Andri S. Hilmarsson