Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Dalsmári 1. Smáraskóli. Breytt deiliskipulag.

Málsnúmer: 25031324

Ferill máls

01

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 24. fundur

Lagt fram að nýju að lokinni grenndarkynningu umsókn umhverfissviðs dags. 11. apríl 2025 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 1 við Dalsmára. Í breytingunni felst nýr byggingarreitur, um 19,7m x 28.7m að stærð, fyrir þrjár færanlegar kennslustofur. Fyrirhugaðar kennslustofur verða samtals 428m² á stærð, tengdar saman með tengigangi og á einni hæð. Hámarks þak- og vegghæð frá gólfi mun vera um 4,12m. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 14. apríl 2025 var samþykkt að grenndarkynna tillöguna, var hún grenndarkynnt frá 30. apríl til 30. maí 2025. Engar athugasemdir bárust.

Uppdrættir í mkv. 1:2000 og 1:250 dags. 11. apríl 2025.

Samþykkt með vísan 3.tl. 3. gr. í viðauka IV. við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024.