Dalsmári 13. Byggingaráform.
Málsnúmer: 25031388
Ferill máls
01
Skipulags- og umhverfisráð - 6. fundur
Með tilvísun í skipulagskilmála fyrir breytt deiliskipulag Kópavogsdals, Dalsmára 13 eru lögð fram f.h. lóðarhafa byggingaráform Former arkitekta dags. 4. apríl 2025 fyrir lóðina nr. 13 við Dalsmára. Í byggingaráformunum kemur fram hvernig hönnun og frágangur hússins og lóðar fellur að viðmiðum í ákvæðum í skipulagsskilmálum og þeim dæmum eða fyrirmyndum sem fram koma á skýringarmyndum sem fylgja deiliskipulagi sem samþykkt var í bæjarstjórn 14. janúar 2025 og birt í B-deild stjórnartíðinda þann 27. febrúar 2025. Uppdrættir í mkv. 1:100, 1:200 og 1:500 dags. 4. apríl 2025.
Rebekka Pétursdóttir og Ellert Hreinsson frá Former arkitektum gerðu grein fyrir erindinu.
Elín Mjöll Lárusdóttir verkefnastjóri tók sæti á fundinum undir þessum lið.
Ekki eru gerðar athugasemdir við að sótt verði um byggingarleyfi í samræmi við framlögð byggingaráform dags. 4. apríl 2025.