Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Fyrirspurn bæjarfulltrúa varðandi úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála

Málsnúmer: 25032173

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3216. fundur

Frá bæjarritara, lögfræðiþjónustu, dags. 20.05.2025, lagt fram svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa frá 20.03.2025.

Lagt fram.

02

Bæjarráð - 3209. fundur

Í úrskurði úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála frá 13. mars sl. er lagt fyrir Kópavogsbæ að taka beiðni fyrirtækis um lokaúttekt byggingarfulltrúa á tiltekinni fasteign til efnislegrar meðferðar. Þar eru alvarlegar athugasemdir við málsmeðferð Kópavogsbæjar sem neitaði í þrjú ár að afgreiða beiðni húsbyggjenda um lokaúttekt. Í ljósi þessa úrskurðar er farið fram á yfirlit um úrskurði nefndarinnar, þar sem fundið hefur verið að málsmeðferð lögfræðinga Kópavogsbæjar og embættis byggingarfulltrúa og á þessu kjörtímabili. Jafnframt er óskað upplýsinga um hvernig lærdómum af einstökum úrskurðum nefndarinnar hefur verið fylgt eftir til umbóta í stjórnsýslu bæjarins.



Helga Jónsdóttir

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Theodóra S. Þorsteinsdóttir

Bergljót Kristinsdóttir





Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til bæjarritara.