Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Innritun í leikskóla Kópavogs

Málsnúmer: 25032763

Ferill máls

01

Menntaráð - 167. fundur

Lögð fram til kynningar staða innritunar leikskóla Kópavogs, fyrir skólaárið 2026-2027.

Lagt fram.

Umræða.

Fundarhlé hófst 16:30, fundi framhaldið 16:35.

Bókun:

Meirihluti menntaráðs fagnar stöðu innritunar í leikskóla Kópavogs. Árangurinn talar sínu máli. Innritun barna er tvisvar á ári og Kópavogsbæ hefur tekist að bjóða leikskólapláss strax að loknu fæðingarorlofi. Þennan árangur má rekja til góðrar vinnu við innleiðingu og áframhald Kópavogsmódelsins, sem mótað var og innleitt af núverandi meirihluta í nánu samstarfi við menntasvið sveitarfélagsins.

Karen Rúnarsdóttir

Hildur Karen Sveinbjarnardóttir

Hildur Einarsdóttir

Arnór Aðalsteinsson

Gunnar Sær Ragnarsson

Fundarhlé hófst 16:36, fundi framhaldið 16:46.

Bókun:

Fulltrúar minnihlutans í menntaráði taka undir að ánægjulegt sé að staða innritunar í leikskóla Kópavogs sé góð og að tekist hafi að bjóða hluta barna leikskólapláss strax að loknu fæðingarorlofi. Fyrir það ber að þakka starfsfólki menntasviðs og leikskólanna. Nauðsynlegt er að huga að því hvernig megi brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskólavistunnar hjá þeim börnum sem fæðast á þeim tíma árs þegar ekki er unnt að bjóða þeim leikskólapláss strax að loknu fæðingarorlofi.

María Ellen Steingrímsdóttir

Nína Berglind Sigurgeirsdóttir

Irpa Fönn Hlynsdóttir

Björn Þór Rögnvaldsson

02

Leikskólanefnd - 178. fundur

Minnisblað um stöðu innritunar í leikskóla Kópavogs fyrir skólaárið 2026-2027 lagt fram til kynningar.

Leikskólanefnd fagnar því að börn fædd í júní 2025 hafi fengið úthlutað leikskólarými í fyrsta hluta úthlutunar fyrir skólaárið 2026 - 2027.

03

Leikskólanefnd - 174. fundur

Lagt fram til samþykktar.

Leikskólanefnd samþykkir erindið fyrir sitt leyti.

04

Leikskólanefnd - 171. fundur

Farið yfir stöðu innritunar í leikskóla Kópavogs fyrir skólaárið 2025-2026

Lagt fram og umræður.

05

Menntaráð - 143. fundur

Deildarstjóri leikskóladeildar upplýsir um stöðu innritunar í leikskóla Kópavogs fyrir skólaárið 2025-2026.

06

Menntaráð - 143. fundur

Deildarstjóri leikskóladeildar upplýsir um stöðu innritunar í leikskóla Kópavogs fyrir skólaárið 2025-2026.

07

Leikskólanefnd - 170. fundur

Deildarstjóri leikskóladeildar upplýsir um stöðu innritunar í leikskóla Kópavogs fyrir skólaárið 2025-2026.

Leikskólanefnd þakkar greinagóðar skýringar á úthlutun í leikskóla skólaárið 2025 - 2026. Í ljósi umræðna var ákveðið að næsti fundur verði 22. apríl 2025.