Hagræðingartillögur vegna kjarasamnings kennara
Málsnúmer: 25032767
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1318. fundur
Frá bæjarstjóra, lagðar fram tilögur vegna hagræðingar í rekstri til að mæta kostnaði við nýsamþykktan kjarasamning kennara. Bæjarrráð tók málið fyrir á fundi sínum 27.03.2025 og samþykkti að vísa þeim til nánari útfærslu skrifstofu áhættu- og fjárstýringar. Nú lagt fram svar bæjarstjóra.
Fulltrúi minnihluta óskar eftir því að hagræðingatillögur séu afgreiddar hver í sínu lagi.
Bæjarstjórn hafnar því með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Hákons Gunnarssonar og Thelmu Árnadóttur.
Fundarhlé hófst kl. 19:32, fundi fram haldið kl. 19:34.
Breytingartillögur minnihluta:
Lækka laun bæjarstjóra um 10%, áætlaður sparnaður á ársgrundvelli 3.000.000 kr.
Bæjarstjórn hafnar því með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Hákonar Gunnarssonar og Thelmu Árnadóttur.
2. Endurskoða upphæð akstursgreiðslna bæjarstjóra, kostnaður á ársgrundvelli er nú um 2.100.000 kr.
Bæjarstjórn hafnar því með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Hákonar Gunnarssonar og Thelmu Árnadóttur.
3. Gera tillögu til stjórnar slökkviliðsins þess efnis að hætt verði að greiða fyrir stjórnarsetu í slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Áætlaður sparnaður fyrir Kópavogsbæ á ársgrundvelli um 3.000.000. kr.
Bæjarstjórn hafnar því með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Hákonar Gunnarssonar og Thelmu Árnadóttur.
4. Lækka álag fyrir formennsku í nefndum og ráðum sem og fyrir forseta bæjarstjórnar niður í 20% álag, áætlaður sparnaður á ársgrundvelli 4.000.000 kr.
5. Fresta byggingu stúku fyrir HK og endurskoða þarfagreiningu í nánu samstarfi við HK.
Bæjarstjórn hafnar því með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Sigurbjargar E. Egilsdóttur og Theódóru S. Þorsteinsdóttur og hjásetu Hákonar Gunnarssonar og Thelmu Árnadóttur.
6. Kalla eftir hagræðingartillögum frá almenningi í tengslum við næstu
fjárhagsáætlunargerð.
Bæjarstjórn hafnar því með 6 atkvæðum gegn atkvæðum Sigurbjargar E. Egilsdóttur, Theódóru S. Þorsteinsdóttur, Hákonar Gunnarssonar og Thelmu Árnadóttur.
Bæjarstjórn samþykkir með 10 atkvæðum tillögu bæjarstjóra að hagræðingum í rekstri.
Bókun:
"Undirrituð harma að ekki hafi verið samþykkt að greiða atkvæði um hverja tillögu fyrir sig og áskilja sér rétt til að taka afstöðu til einstakra tillagna þegar þær koma til frekari útfærslu í bæjarráði."
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Hákon Gunnarsson
Helga Jónsdóttir
Thelma Árnadóttir
Bókun
"Ásdís Kristjánsdóttir var ráðin framkvæmdastjóri Kópavogsbæjar með ráðningarsamningi sem bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks samþykktu á bæjarstjórnarfundi 14.júní 2022. Í ráðningarsamningnum er samið um heildarlaun og hlunnindi m.a. akstursgreiðslur og greiðslu fyrir setu í bæjarstjórn. Þess ber að gæta að meginskylda framkvæmdastjóra sveitarfélagsins (bæjarstjóra) lögum samkvæmt er að sjá til þess að bæjarstjórnarfundir og aðrir fundir nefnda og ráða bæjarins séu vel undirbúnir, og gögn fullnægjandi til þess að hægt sé að taka upplýsta afstöðu. Á því hefur verið mikill misbrestur allt þetta kjörtímabil og fyrir vikið eru störf bæjarfulltrúa í Kópavogi mun meira krefjandi en þau eiga að vera.
Launaþætti ráðningarsamnings bæjarstjórnar við bæjarstjóra verður ekki breytt án samþykkis beggja aðila. Þegar bæjarfulltrúar sameinast um lækkun eigin launa um 10% samkvæmt tillögu bæjarstjóra vekur það til umhugsunar að Ásdís Kristjánsdóttir sé aðeins reiðubúin til að endurskoða lítið brot af heildarlaunum sínum, sem er ekki hagræðingarskref sem stendur undir nafni.
Ásdís Kristjánsdóttir velur að verja eigin launakjör og hlunnindi með vísan til þess að bæjarstjóri gegni viðamiklu hlutverki og ábyrgðin sé mikil í ört stækkandi bæjarfélagi. Ef stærð sveitarfélags eða íbúafjöldi eru rök fyrir háum launum bæjarstjóra, má upplýsa að kostnaður hvers íbúa í Kópavogi af launum bæjarstjóra er um 225% hærri en kostnaður íbúa í Reykjavík af launum borgarstjóra. Akstursgreiðslur miðast við 1.250 kílómetra akstur á mánuði. Synjun á endurskoðun þeirra vekur spurningar um forgangsröðun og raunverulega þörf, sérstaklega þegar kallað er eftir almennu aðhaldi og hagræðingu."
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Hákon Gunnarsson
Helga Jónsdóttir
Thelma Árnadóttir
Bókun:
"Minnihlutinn gerir í því að tortryggja störf bæjarstjórans í Kópavogi og nú er sjónum beint að launum bæjarstjórans sem eru skör lægri en í sambærilegum sveitarfélögum.
Það er ábyrgðarhluti að ræða hagræðingartillögur sem unnar voru og lagðar fram af bæjarstjóra á málefnalegum forsendum. Í stað þess að gera það kaus minnihlutinn að koma með breytingartillögu við 670 milljóna króna hagræðingar- og afkomubætandi tillögur, sem liggja til samþykktar fyrir þessum fundi, sem snúa að launakjörum og starfstengdum greiðslum bæjarstjórans. Pólitískt útspil minnihlutans og persónulegar árásir í garð bæjarstjóra eru ómálefnalegar og settar fram til þess að gera mikilvægar hagræðingaraðgerðir tortryggilegar.
Meirihlutinn hafnar þessum málflutningi algjörlega og bendir á að bæjarstjóri tekur bæði launalækkun sem bæjarfulltrúi, sem er hluti af heildarlaunum bæjarstjóra, og einnig í formi launafrystingar til júlí 2026 sem framkvæmdastjóri sveitarfélagsins og felur í sér raunlaunalækkun."
Orri V. Hlöðversson
Andri S. Hilmarsson
Hjördís Ýr Johnson
Gunnar Sær Ragnarsson
Ásdís Kristjánsdóttir
Elísabet B. Sveinsdóttir
02
Bæjarráð - 3211. fundur
Frá bæjarstjóra, lagðar fram tilögur vegna hagræðingar í rekstri til að mæta kostnaði við nýsamþykktan kjarasamning kennara. Bæjarrráð tók málið fyrir á fundi sínum 27.03.2025 og samþykkti að vísa þeim til nánari útfærslu skrifstofu áhættu- og fjárstýringar. Nú lagt fram svar bæjarstjóra.
Tillaga um frestun málsins frá minnihluta.
Bæjarráð hafnar frestun með þremur atkvæðum gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur.
Minnihluti bæjarráðs leggur fram beiðni um upplýsingar í níu liðum og eru undir málinu.
Bæjaráð samþykkir að umbeðnar upplýsingar minnihluta verði tilbúnar fyrir næsta fund bæjarstjórnar og vísar framlögðum tillögum til afgreiðslu bæjarstjórnar með þremur atkvæðum gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur og Theódóru S. Þorsteindóttur.
Bókun:
"Á fundi bæjarráðs 27. mars s.l. var samhljóða samþykkt að vísa hagræðingartillögum bæjarstjóra og breytingatillögum fulltrúa minnihluta til nánari útfærslu á skrifstofu áhættu- og fjárstýringar í samræmi við tillöguna. Tillögunum var ekki vísað til bæjarstjóra og ekki var óskað afstöðu hennar. Því er ítrekuð ósk um „nánari útfærslu“ skrifstofu áhættu- og fjárstýringar á fjárhagslegum markmiðum í hagræðingartillögu bæjarstjóra og viðbótartillögum minnihluta."
Helga Jónsdóttir
Bergljót Kristinsdóttir
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Theodóra S. Þorsteinsdóttir
Bókun:
"Ljóst er að meiri- og minnihluta greinir á um hvað telst til fullnægjandi upplýsinga. Á fundinum koma fram beiðni að fá ítarlegri upplýsingar við einstökum liðum og verður þeim svarað fyrir afgreiðslu bæjarstjórnar."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri V. Hlöðversson
Andri S. Hilmarsson
Hjördís Ýr Johnsen.
03
Bæjarráð - 3210. fundur
Frá bæjarstjóra, lagðar fram tilögur vegna hagræðingar í rekstri til að mæta kostnaði við nýsamþykktan kjarasamning kennara.
Umræður.
Fundarhlé hófst kl. 9:14, fundi fram haldið kl. 9:27
Lagðar fram breytingartillögur af hálfu minnihluta.
Bæjarráð samþykkir að vísa framlögðum tillögum bæjarstjóra vegna hagræðingar í rekstri til nánari útfærslu á skrifstofu áhættu- og fjárstýringar í samræmi við tillöguna, auk breytingatillagna fulltrúa minnihluta og áheyrnarfulltrúa.