Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Launakjör kjörinna fulltrúa

Málsnúmer: 25032849

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1318. fundur

Frá bæjarstjóra, lagðar fram breytingatillögur á launakjörum kjörinna fulltrúa. Bæjarrráð tók málið fyrir á fundi sínum 27.03.2025 og samþykkti að vísa þeim ásamt breytingartillögum minnihlutans til nánari útfærslu skrifstofu áhættu- og fjárstýringar. Nú lagt fram svar bæjarstjóra.

Bæjarstjórm samþykkir með 10 atkvæðum framlagðar tillögur bæjarstjóra á launakjörum kjörinna fulltrúa.


Bókun:

"Undirrituð lýsa yfir vonbrigðum með að tillögu um lækkun á álagi fyrir formennsku í nefndum, ráðum og forsetahlutverkum bæjarstjórnar hafi verið hafnað. Tillaga byggðist á því meginmarkmiði að tryggja hóflegra og sanngjarnara álag fyrir umfang og ábyrgð í nefndarstörfum. Ekki eru rök fyrir að formennska feli í sér 50% meira vinnuframlag en aðrir nefndarfulltrúa leggja til. Meirihlutinn hefur kosið að formenn allra nefnda komi úr röðum Sjálfstæðis- og Framsóknarfólks eins og á við um forseta. Sú ákvörðun er ekki í samræmi við viðhorf undirritaðra til þess að minnihlutinn, sem er með litlu lægra atkvæðahlutfall íbúa á bak við sig en meirihlutinn, eigi að hafa formennsku í einstökum nefndum.

Með lækkun álags hefði skapast skýrara og réttlátara fyrirkomulag og umbun miðast við raunverulega ábyrgð og vinnu. Um leið hefði samþykkt tillögunnar falið í sér verulegan sparnað fyrir sveitarfélagið - allt að 4 milljónum króna á ári. Undirrituð telja að með því að hafna tillögunni hafi tapast tækifæri til að sýna ábyrgð og hófsemi í rekstri Kópavogsbæjar."

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Hákon Gunnarsson

Helga Jónsdóttir

Thelma Árnadóttir

Bókun

"Athygli vekur að hvergi í hugmyndum minnihlutans er að finna tillögur að lækkun þeirra eigin kjara umfram tillögur bæjarstjóra heldur einungis kjara annarra.

Í svörum bæjarstjóra við breytingartillögu minnihlutans má sjá að álag við að gegna stöðu forseta og formanns í ráðum og nefndum er almennt svipað í Kópavogi og tíðkast í samanburðar sveitarfélögum, jafnvel dæmi um að álagið sé talvert hærra í einstökum sveitarfélögum - þrátt fyrir að Kópavogsbær sé stærsta sveitarfélagið í þessum samanburði. Almennt helst það í hendur að því stærri sem sveitarfélög eru því umfangsmeiri eru verkefnin og nefndarmenn því fleiri. Í ljósi þessa má færa rök fyrir því að álag við að gegna stöðu forseta og formanns í ráðum og nefndum hjá Kópavogsbæ ætti að vera hærra en hjá öðrum minni sveitarfélögum."

Orri V. Hlöðversson

Ásdís Kristjánsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Andri S. Hilmarsson

Gunnar Sær Ragnarsson

Elísabet B. Sveinsdóttir


Bókun:

"Undirrituð harma að meirihlutinn skuli draga upp þá mynd að tillögurnar snúist um að lækka einungis kjör annarra en þeirra eigin, en ekki með hliðsjón af heildstæðri sýn á ábyrgð og hófsemi í rekstri sveitarfélagsins.

Undirrituð árétta að tillaga um lækkun álags fyrir formennsku í nefndum, ráðum og fyrir forseta bæjarstjórnar er alls ekki lögð fram til höfuðs þeim sem gegna þeim störfum í dag. Þvert á móti er markmið hennar að tryggja jafnræði og sanngirni í launasetningu kjörinna fulltrúa, þar sem tekið er mið af þeirri raunverulegu vinnu og ábyrgð sem þessum hlutverkum fylgir."

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Hákon Gunnarsson

Helga Jónsdóttir

Thelma Árnadóttir

Bókun:

"670 milljónir króna hagræðingar og afkomubætandi tillögur staðfesta áherslur meirihlutans á ábyrgan rekstur. Fagnaðarefni er að Kópavogsbær sýni frumkvæði og stígi fram með góðu fordæmi. Mikilvægt er að halda því til haga að forseti og formenn eru að lækka í krónum meira en aðrir nefndarmenn og áheyrnafulltrúar.  Álag við að gegna formennsku í ráðum og nefndum er sambærilegt á við önnur sveitarfélög."

Orri V. Hlöðversson

Ásdís Kristjánsdóttir

Hjördís Ýr Johnson

Andri S. Hilmarsson

Gunnar Sær Ragnarsson

Elísabet B. Sveinsdóttir

02

Bæjarráð - 3211. fundur

Frá bæjarstjóra, lagðar fram breytingatillögur á launakjörum kjörinna fulltrúa. Bæjarrráð tók málið fyrir á fundi sínum 27.03.2025 og samþykkti að vísa þeim ásamt breytingartillögum minnihlutans til nánari útfærslu skrifstofu áhættu- og fjárstýringar. Nú lagt fram svar bæjarstjóra.

Bæjaráð vísar framlögðum tillögum að breytingum á launakjörum, ásamt breytingartillögum minnihluta, til afgreiðslu bæjarstjórnar.

03

Bæjarráð - 3210. fundur

Frá bæjarstjóra, lagðar fram breytingatillögur á launakjörum kjörinna fulltrúa.

Umræður.

Lagðar fram breytingartillögur af hálfu minnihluta.

Bæjarráð samþykkir að vísa framlögðum tillögum bæjarstjóra um 10% lækkun launa kjörinna fulltrúa til nánari útfærslu á skrifstofu áhættu- og fjárstýringar, ásamt breytingartillögum minnihluta fulltrúa bæjarráðs og áheyrnarfulltrúa.