Til baka í fundargerðir
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja)
Málsnúmer: 25051813
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3216. fundur
Frá innviðaráðuneytinu, dags. 14.05.2025. lagt fram erindi þar sem vakin er athygli á því að áform um lagabreytingar sem innviðaráðherra hyggst leggja fram á næsta haustþingi hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Annars vegar er um að ræða frumvarp til laga um breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja) og hins vegar er um að ræða frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum (endurskoðun sveitarstjórnarlaga).
Bæjarráð vísar erindinu til yfirlögfræðings.