Til baka í fundargerðir
Beiðni bæjarfulltrúa Vina Kópavogs, Pírata, Viðreisnar og Samfylkingarinnar, um umsögn á skýrslu sem lögð var fram á 3. fundi innkaupanefndar
Málsnúmer: 25052394
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3216. fundur
Frá bæjarfulltrúum Vina Kópavogs, Pírata, Viðreisnar og Samfylkingarinnar, dags. 20.05.2025, lögð fram beiðni um umsögn fyrrverandi sviðsstjóra fjármálsviðs á skýrslu Strategíu.
Bæjarráð hafnar tillögunni með þremur atkvæðum gegn atkvæðum Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Helgu Jónsdóttur
Bókun:
"Meirihluti sér ekki tilgang í því að fá umsögn fyrrum fjármálastjóra á skýrslu Strategiu. Nú þegar eru umfangsmiklar breytingar á grundvelli hennar á stjórnkerfi og skipuriti Kópavogsbæjar komnar til framkvæmda. Breytingarnar sem skýrslan leggur til voru samþykktar mótatkvæðalaust í bæjarstjórn þann 25. febrúar sl."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri V. Hlöðversson
Hjördís Ýr Johnson
Andri S. Hilmarsson