Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Skemmuvegur 46. Byggingarleyfisumsókn.

Málsnúmer: 25062107

Ferill máls

01

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 45. fundur

Lögð fram að nýju að lokinni grenndarkynningu byggingarleyfisumsókn Kristins Más Þorsteinssonar f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 46 við Skemmuveg. Sótt er um byggingarleyfi fyrir 252 m² viðbyggingu við suðurhluta núverandi iðnaðarhúss á lóðinni. Fyrirhuguð viðbygging er í sömu hæð og núverandi iðnaðarhús, er á tveimur hæðum auk millilofts og með reistu þaki. Við breytinguna eykst byggingarmagn úr 1.226 m² í 1.478 m² og nýtingarhlutfall lóðarinnar hækkar úr 0,82 í 1,0. Fyrirkomulag bílastæða breytist og afmörkun lóðar breytist á suðvesturhorni lóðar. Lóð minnkar um 19,27 m², úr 1.488 m² í 1.468,73 m². Mæliblað fyrir lóðina verður uppfært.

Samþykkt með vísan 4.tl. 3. gr. í viðauka lV við samþykkt um stjórn Kópavogsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 1691/2024. Vísað til fullnaðarafgeiðslu byggingarfulltrúa.

02

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 36. fundur

Lagt fram að nýju erindi byggingarfullrúa dags. 24. október 2025 þar sem byggingarleyfisumsókn Kristins Más Þorsteinssonar f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 46 við Skemmuveg er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að byggja 258 m² viðbyggingu. Uppdrættir dags. í janúar 2023, uppfærðir í júlí 2024 og desember 2025. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 10. nóvember 2025 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt minnisblaði dags. 8 desember 2025 og uppfærðum uppdráttum dags. í janúar 2023, uppfærðir í júlí 2024 og í desember 2025.

Samþykkt að grenndarkynna framlagða byggingarleyfisumsókn fyrir hagsmunaaðilum að fyrir lóðarhöfum lóðanna nr. 6, 8, 10A, 10B, 12, 14, 16, 18, 20, 22, 24, 26, 28, 30, 32, 34, 34A, 36, 38, 40, 42 og 44 við Skemmuveg (bleik gata). Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 28. gr. í samþykkt Kópavogsbæjar nr. 1725/2024.

03

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 34. fundur

Lagt fram erindi byggingarfullrúa dags. 24. október 2025 þar sem byggingarleyfisumsókn Kristins Más Þorsteinssonar f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 46 við Skemmuveg er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um að byggja 258 m² viðbyggingu. Uppdrættir dags. í janúar 2023, uppfærðir í júlí 2024.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.