Beint í efni
Til baka í fundargerðir

HK - Erindi vegna merkinga í Íþróttahúsi Digranes

Málsnúmer: 2506902

Ferill máls

01

Lýðheilsu- og íþróttanefnd - 5. fundur

Lagt fram erindi frá Aðalstjórn HK, dags. 10. júní 2025, þar sem óskað er eftir því að reglur Kópavogsbæjar um merkingar á íþróttamannvirkjum verði endurskoðaðaðr svo félagið geti sett upp merki félagsins í Digranesi, sem er heimavöllur blakdeildar og við knattspyrnuvelli í Versölum.

Lýðheilsu- og íþróttanefnd er nú að endurskoða reglur sínar í heild, eins og fram kemur í 2. lið þessarar fundargerðar og munu óskir félagsins vera teknar til skoðunar í þeirri vinnu. Ekki stendur þó til að endurskoða merkingar íþróttamannvirkja í rekstri bæjarins utanhúss.