Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Austurgerði 2. Fyrirspurn.

Málsnúmer: 25091898

Ferill máls

01

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 33. fundur

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Austurgerði dags. 15. september 2025 um fjölgun bílastæða. Innkeyrsla lóðarinnar er staðsett norðan megin á lóðinni og fyrirhugað er að bæta við bílastæðum vestan megin á lóðinni við aðalinngang hússins. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 22. september 2025 var erindinu vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. október 2025.

Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 27. október 2025.

02

Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 30. fundur

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa lóðarinnar nr. 2 við Austurgerði dags. 15. september 2025 um fjölgun bílastæða. Innkeyrsla lóðarinnar er staðsett norðan megin á lóðinni og fyrirhugað er að bæta við bílastæðum vestan megin á lóðinni við aðalinngang hússins.

Vísað til umsagnar verkefnastjóra.