Til baka í fundargerðir
Áherslur notendaráðs í fjárhagsáætlun 2026
Málsnúmer: 25093780
Ferill máls
01
Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks - 22. fundur
Mál sett á dagskrá að beiðni Ingveldar Jónsdóttur, fulltrúa ÖBÍ í notendaráðu um málefni fatlaðs fólks, þar sem óskað er eftir umræðu um að fjárhagsáætlun geri ráð fyrir nægu fjármagni til þess að Kópavogsbær getistaðið við lögbundnar skyldur sínar um þjónustu við fatlað fólk.
Notendaráð í málefnum fatlaðs fólks óskar eftir því að bæjarstjórn horfi til áætlunar velferðarsviðs og veiti fé í samræmi við hana fyrir árið 2026. Nauðsynlegt er að veita lögbundna þjónustu við fatlað fólk og að gert sé ráð fyrir henni í fjárhagsáætlun bæjarins. Biðlistar eftir þjónustu við fatlað fólk vegna fjárskorts eru óásættanlegir.