Langabrekka 35. Byggingarleyfisumsókn.
Málsnúmer: 25101454
Ferill máls
01
Embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa - 34. fundur
Lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 10. október 2025 þar sem byggingarleyfisumsókn Kjartans Rafnssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 35 við Löngubrekku er vísað til skipulagsfulltrúa. Sótt er um viðbyggingu við núverandi bílgeymslu að lóðarmörkum til suðurs og einnig til vesturs inn á dvalarsvæði lóðar. Einnig er sótt um að lækka lóð til suðurs og byggja upp staðsteyptan stoðvegg á syðri lóðarmörkum. Efsti hluti á stoðveggnum verður léttur timburveggur. Uppdrættir og skráningartafla dags. 29. júlí 2025.
Þá er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 10. nóvember 2025.
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 10. nóvember 2025. Samræmist ekki viðmiðum Aðalskipulags Kópavogs 2019-2040 um nýtingarhlutfall.